Bíó og sjónvarp

Vonir bundnar við Henry Cavill

Henry Cavill verður sífellt vinsælli í Hollywood.

Cavill fer með hlutverk Supermans í stórmyndinni Man of Steel sem frumsýnd verður hér á landi í næstu viku. Leikarinn fetar í fótspor þeirra Georges Reeves, Christophers Reeve og Brandons Routh sem allir hafa farið með hlutverk Clarks Kent.

Hinn breski Cavill hefur hingað til aðeins birst í litlum hlutverkum í kvikmyndum en það var í sjónvarpsþáttunum The Tudors sem Cavill hóf að vekja athygli.

Það eru engir nýgræðingar sem leika við hlið Cavills í Man of Steel, en þar má nefna þau Amy Adams og Russell Crowe, Michael Shannon, Kevin Costner og Diane Lane.

Cavill þykir vígalegur í hlutverki Supermans í Man of Steel.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×