Þarf bara að vera nógu góður Friðrika Benónýsdóttir skrifar 15. júní 2013 16:00 Systkinin Sólveig og Þorleifur Örn Arnarsbörn. Fréttablaðið/Anton
Systkinin taka á móti mér á heimili Sólveigar á rigningarsíðdegi í vikunni. Óhjákvæmilega beinist umræðan fyrst að afhendingu Grímuverðlaunanna sem fram fór kvöldið áður en við hittumst. Á meðan Sólveig fer að mala og laga kaffi spyr ég Þorleif hvort verðlaunadreifingin hafi komið honum á óvart. „Fólk var almennt verulega undrandi á því hverjir hlutu verðlaun þarna í gær,“ segir hann. „Og ekki bara hvað varðar Engla alheimsins. Hvernig getur sýning orðið sýning ársins án þess að leikstjórinn sé tilnefndur, án þess að leikmyndin sé tilnefnd og án þess að aðalleikarinn sem verkið er nefnt eftir sé tilnefndur? Hvað var þá svona frábært við sýninguna? Ég hefði orðið mjög svekktur ef sýning eftir mig hefði verið valin sýning ársins en starf mitt, aðalleikarans og leikmyndahönnuðarins, sem er minn nánasti listræni samstarfsmaður, verið virt að vettugi. Allir sem kunna að lesa leikhús sjá að gæði leiksýningar hanga algjörlega saman við a) aðalleikarann og b) leikstjórnina. Þetta er ekki hægt að taka í sundur, ef þér finnst annað svona frábært en hitt ekki þá skil ég ekki hvaða leikhúslæsi liggur á bak við ákvarðanatökuna. Valferlið hefur reyndar lengi verið gagnrýnt. Það veit enginn hverjir eru í Grímunefndinni og þetta virðist fara eftir einhverju stigakerfi en samt hafa ekki allir séð allar sýningar. Með þessu lagi verður til einhvers konar tölfræðilegt misræmi sem birtist mjög skýrt í gær. Þetta bar sterkan svip af málamiðlun.“ Nú er Sólveig komin með kaffið og blandar sér í umræðuna. „Það verður samt að koma skýrt fram að við erum ekki að tala um þetta bara í sambandi við Englana, það voru þarna margar mjög furðulegar verðlaunaveitingar, sem erfitt er að skilja hvað liggur á bak við.“ „Já,“ grípur Þorleifur fram í. „Þá erum við komin að grundvallarspurningum um verðlaunaveitingar í listum almennt. En varðandi Grímuna þá væri mun heiðarlegra að það væri bara opinber dómnefnd og valið endurspeglaði smekk hennar. Reyndar halda flestir að þannig sé staðið að Grímunni, en það er misskilningur, þetta er allt eitthvert allsherjar leyndarmál.“Þetta hljómar dálítið eins og þú hafir orðið fyrir vonbrigðum. „Já, ég viðurkenni það alveg, miðað við viðbrögðin við sýningunni átti ég von á meiru. En, hvað, maður er fúll í einn dag en gleymir því svo bara og heldur áfram að gera góða list.“ Viðtalið átti reyndar ekki að snúast um Grímuna og komið að því að yfirheyra þau systkinin um goggunarröðina innan fjölskyldunnar.Hvað er langt á milli ykkar? „Ha? Ætlarðu ekkert að spyrja hvort okkar sé eldra,“ segir Sólveig og þykist móðguð. „Það eru fimm ár á milli okkar. Guðrún var elst okkar systkinanna, níu árum eldri en ég. Við vorum tvær í fimm ár og síðan kemur þarna óskilgreind hrúga af börnum. Þorleifur er elstur í þeirri hrúgu. Af einhverjum ástæðum þá tilheyrði ég alltaf eldri systrunum, þótt það væri lengra á milli mín og Guðrúnar en mín og yngsta bróður okkar, Jóns.“ „Þannig að ég er miðjubarn en samt líka elsti bróðir í yngra hollinu,“ segir Þorleifur. „Sólveig var alltaf eldri systir okkar og passaði okkur mikið, kenndi mér að hlusta á rokkmúsík og svona, en Guðrún var óumdeild stóra systir, enda var hún nánast orðin fullorðin kona þegar ég man eftir mér.“Og það hefur aldrei komið annað til greina en að leggja leiklistina fyrir sig, eða hvað? „Nei, þetta er alveg óskaplegur skortur á ímyndunarafli,“ segir Þorleifur og hlær. „Ég ætlaði nú lengi vel að verða bóndi,“ segir Sólveig. „Ég ætti kannski að fara að skoða það. Hefði kannski getað sótt um styrk til Evrópusambandsins til að fara út í grænmetisrækt, en nú er búið að loka því, þannig að ég er sennilega búin að missa af lestinni.“ Hér fara þau systkin á flug og umræðan spinnst í kringum mislukkaða sveitardvöl Þorleifs sem barns. „Það sáu allir eftir því þegar ég var sendur í sveit,“ segir hann. „Bæði foreldrar mínir og bændurnir sem tóku á móti mér. Pabbi og mamma þurftu að koma keyrandi og sækja mig eftir nokkra daga.“ „Ég hins vegar fór ekki úr gúmmískónum og lopapeysunni fyrr en ég var komin í menntaskóla,“ segir Sólveig. „Þannig að kannski spannst bóndadraumurinn bara út frá því hvar ég gæti nýtt gúmmískóna best. En svona í alvöru þá var það nokkuð fyrirséð hjá okkur báðum að leiklistin yrði fyrir valinu.“Þú fórst í leikaranám, Þorleifur. Hvað breyttist? „Ég bara komst fljótlega að því að ég hafði ekkert að gera þeim megin. Ég á heima hinum megin, enda frumsýndi ég mitt fyrsta verk sem leikstjóri þremur vikum eftir að ég útskrifaðist sem leikari.“ „Það er svolítið leiðinlegt því þú ert svo myndarlegur,“ segir systir hans og glottir. „Ef þú gætir nú bara þagað. Þögul hlutverk mundu fara þér vel.“ Þorleifur upplýsir að reyndar hafi leikhússtjóri í Wiesbaden farið þess á leit að hann léki Hamlet, systur hans til mikillar hneykslunar. Enn og aftur fer umræðan um víðan völl og á svipstundu er búið að hanna sýningu á Hamlet þar sem Þorleifur léki aðalhlutverkið, Sólveig Geirþrúði móður hans og jafnvel kæmi til greina að faðir þeirra léki Kládíus kóng. Þau fara á flug, grípa orðið hvort frá öðru, spinna og kasta hugmyndum á milli sín, þótt alvaran að baki hugmyndinni risti ekki djúpt. „En samt,“ segir Þorleifur. „Ef maður myndi bara leika eina rullu á lífsleiðinni yrði það að vera Hamlet.“ „Iss, segir Sólveig. „Þetta er bara eitthvert blæti í þér gagnvart Hamlet. Örugglega bara af því að það er frægasta rulla leikbókmenntanna.“ Þótt það sé óskaplega skemmtilegt að fylgjast með orðaskylmingum systkinanna rennur mér blóðið til blaðamannsskyldunnar. Ég geri mitt besta til að beina umræðunni aftur í „réttan“ farveg og spyr Sólveigu um ástæðu þess að hún hélt til leiklistarnáms í Berlín. „Ég var búin að vera svo mikið í leikhúsunum hérna heima og langaði ekki að fara í námið hér. Fannst Austur-Evrópa mjög spennandi, var eitthvað að hugsa um Rússland, en þegar ég kveikti á Berlín og frétti af þessum leiklistarskóla, Ernst Busch sem er gamli austur-þýski leiklistarháskólinn, varð ekkert aftur snúið. Þetta var strax eftir fall múrsins og þótt Berlín þyki æðislega smart og töff í dag þá þykir mér hún orðin gríðarlega leiðinleg og „mainstream“ miðað við það sem hún var frá sirka "93 til 2000. Þetta var svo mikill suðupottur. Borgin að reyna að vaxa aftur saman og finna eitthvert „identity“ og allir árekstrarnir sem því fylgdu. Það er á þessum árum sem „þýska leikhúsið“ verður til, þótt sú skilgreining eigi reyndar aðallega við um tvö, þrjú svið í Berlín. Þetta var algjör flugeldasýning og ekki síst í pólitíkinni. Það kom til dæmis í ljós að fjórir af prófessorunum við skólann höfðu verið njósnarar fyrir Stasi, en það gerðist nú nánast á hverjum einasta vinnustað.“ Sólveig var tekin inn af annarri af stærstu umboðsskrifstofum Þýskalands meðan hún var enn í námi, fékk vinnu strax eftir útskrift sem leikkona og starfaði og bjó í Berlín í tíu ár. Lék fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Í einni af heimsóknum Þorleifs til hennar fór hann að skoða Ernst Busch og féll kylliflatur. „Ég sótti ekki einu sinni um leikstjóranám í neinum öðrum skóla. Þetta var bara staðurinn. Bæði öflugasti skóli Þýskalands og í öflugustu borg Þýskalands. Það var aldrei spurning.“ Þorleifur naut álíka velgengni og systir hans og var farinn að leikstýra sýningum hjá virtum leikhúsum áður en hann útskrifaðist sem leikstjóri.Hver er galdurinn við að komast inn í þýska leikhúsheiminn? „Bara að vera nógu góður,“ segir Sólveig snögg upp á lagið. „Auðvitað þarf einhver að veðja á mann til að byrja með,“ segir Þorleifur. „Skólinn okkar er samt auðvitað þannig að hann gefur þér stökkpall. Þarna kemur fullt af fólki og skoðar það sem þú ert að gera. Með því að vera þar kemurðu í raun fætinum í dyrnar. En þú færð ekkert marga sénsa. Ef þú klúðrar uppsetningu ertu nánast búinn að vera. Og ef sýningum þínum er vel tekið þá eru tiltölulega miklar líkur á að þú haldir áfram að fá nóg að gera.“ Þorleifur veit um hvað hann er að tala en sýningar hans hafa upp til hópa notið mikillar velgengni, fengið verðlaun og aðdáun, enda hefur hann meira en nóg að gera. Meðal leiksýninga sem hann hefur sett upp í hinum þýskumælandi heimi eru Psychosis 4.48 í borgarleikhúsinu í Karlsruhe, Lér konungur og Mutter Courage í borgarleikhúsinu í Konstanz, Meistarinn og Margaríta í Landestheater Tübingen, A Clockwork Orange í borgarleikhúsinu í Schwerin, Pétur Gautur og Grimm í Luzerner-leikhúsinu, Rómeó og Júlía, Othello og Die Kontrakte des Kaufmanns í St. Gallen leikhúsinu, Leðurblakan og La Bohème í óperuhúsinu í Augsburg og Guðdómlegi gleðileikurinn í Stadttheater Mainz. Fyrir tveimur árum flutti hann heim og flaug út til að leikstýra en nú er aftur komið að tímamótum og það sem meira er þá ætlar hann í þetta sinn að taka systur sína með sér. „Hún er sko miklu þekktari en ég í Þýskalandi,“ segir hann. „Og nú erum við bæði að flytja út aftur,“ segir Sólveig. „Þorleifur hefur verið ráðinn leiðandi leikstjóri við óperu- og leikhúsið í Wiesbaden frá og með næsta hausti og ég er komin þar á fastan samning sem leikkona.“ Þótt Íslendingar þekki kannski ekki leikhúsið í Wiesbaden þá er það ekkert smáræðisbatterí. „Það eru sex hundruð fastráðnir starfsmenn við húsið,“ útskýrir Þorleifur. „Og fjármunirnir sem það veltir eru meira en tvöfalt meiri en samanlagt framlag ríkisins til Þjóðleikhússins, Borgarleikhússins, Sinfóníuhljómsveitarinnar og Íslenska dansflokksins. Þrjúhundruð þúsund áhorfendur á ári. Það verður mjög spennandi að starfa þarna og mikið tilhlökkunarefni að hafa alla fjölskylduna hjá sér, í stað þess að vera eins og sjómaður sem alltaf er að fara á vertíð og vera langdvölum í burtu.“ Það er ekki alveg komið að þessu en næsta vor munu fjölskyldur beggja taka sig upp og flytja búferlum til Þýskalands. Þangað til hafa þau bæði meira en nóg að gera. Þorleifur er á leið út til að leikstýra Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu í Mainz, og síðan Niflungakvæðinu í borgarleikhúsinu í Bonn og óperunni Lohengrin eftir Richard Wagner í óperuhúsinu í Augsburg. „Og Sólveig verður auðvitað að leika í Englum alheimsins næstu tíu árin,“ segir hann glottandi. „Svo er ég í höfundateyminu fyrir Rétt 3 og reyndar fleiri umræður í gangi um verkefni hér heima, en það er ekki tímabært að tala um það.“ „Ég er búin að vera að skrifa sjónvarpshandrit með Margréti Örnólfsdóttur,“ segir Sólveig. „Við erum einmitt að klára það og það fer vonandi í framleiðslu. Svo er stórt kvikmyndaverkefni í spilunum hér heima og annað verkefni úti, en það er svolítið öðruvísi ferli en hjá Þorleifi sem er með allt niðurneglt. Hér heima er allt planað með mun skemmri fyrirvara og maður þorir eiginlega ekkert að tala um það fyrr en tökur eru byrjaðar. En það verður alveg örugglega nóg að gera á næstunni hjá okkur báðum.“
Mest lesið Frægustu vinslit Íslandssögunnar Lífið Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Lífið Stefán Einar og Sara Lind í sundur Lífið Bryan Adams breytti Eldborg í grátkór íslenskra karla Gagnrýni Elti ástina til Íslands Tónlist Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað Lífið Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Lífið „Gæti skrifað bókaseríu um vandræðileg stefnumót“ Makamál Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Lífið Ósamþykkt kjallaraíbúð á rúmar 44 milljónir Lífið Fleiri fréttir Frægustu vinslit Íslandssögunnar Stefán Einar og Sara Lind í sundur Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað Ósamþykkt kjallaraíbúð á rúmar 44 milljónir Hélt að Sálin hafi hvatt fólk til að horfa til himins með höfuðið hátt Hátíð sem er skipulögð í kringum yngstu kynslóðina Laufey Lín skartaði íslenska fánanum á Coachella Viðar Örn og Sylvía Rós eiga von á barni Heillandi hús við Laugalæk úr smiðju Kjartans Sveinssonar Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Hafa aldrei rifist Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Stóri plokkdagurinn haldinn á sunnudaginn Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Litla hryllingsbúðin kveður á Akureyri Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Krakkatían: Páskar, söngkeppnir og afmælisbörn Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Trommari New Pornographers ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Veikindafríi Páls Óskars lokið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Sunneva og Benedikt trúlofuð Tónlistarmyndband Addison Rae tekið upp á Íslandi Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“