Lífið

Frænkur á pungnum spila fyrir frændann

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Stelpurnar í knattspyrnuliðinu Frænkur á pungnum eru klárar fyrir Mýrarboltann. Þær spila til heiðurs Erpi frænda.
Stelpurnar í knattspyrnuliðinu Frænkur á pungnum eru klárar fyrir Mýrarboltann. Þær spila til heiðurs Erpi frænda. Fréttablaðið/Arnþór
„Við frænkurnar vorum á Frank Ocean þegar við ákváðum að búa til lið og skella okkur saman á Mýrarboltann. Þá kom hugmyndin að nafninu, Frænkur á pungnum,“ segir knattspyrnukonan Greta Mjöll Samúelsdóttir.

Greta er frænka tónlistarmannsins Erps Eyvindarsonar en í einu laga hans lætur hann orðin „frænkur á pungnum“ falla. Frænkur hans tóku þetta til sín og græjuðu búninga fyrir drulluboltann á Ísafirði með yfirskriftinni „Frænkur á pungnum“. „Við erum ekki þessar frænkur sem hann talar um í laginu, við erum þessar frænkur í bókstaflegri merkingu og ætlum að vera á pungnum,“ segir Greta Mjöll og hlær, en búninginn hönnuðu þær stúlkur á miðvikudagskvöldið.

„Mamma er svo mikill reddari. Hún fór í apótekið og keypti alls konar drasl. Við fylltum smokka og keyptum einhverja stressbolta til að búa til pung og svo er þetta einhvers konar blanda af nælonsokkum, bómull og gamalli hárkollu. Þetta verður mjög grafískt og flott.“ Hún segir þó að Erpur sjálfur verði fjarri góðu gamni á Mýrarboltanum. „Það er svekkjandi að hann verður ekki á svæðinu. Hann verður í bænum á einhverju tónleikastandi og á Þjóðhátíð. Hann hefði verið alveg rosalega flottur liðstjóri.“

Spurð að því hvort þær ætli ekki að spila til sigurs á Ísafirði, svarar Greta því játandi. „Við erum náttúrulega með eina í liðinu sem hitaði sig upp á EM í knattspyrnu, hana Rakel Hönnudóttur. Við bættum henni inn í frænkuhópinn svona rétt fyrir Mýrarboltann. En í fyrsta sinn ætla ég að reyna að leggja keppnisskapið aðeins á hilluna og reyna að hafa umfram allt gaman,“ segir Greta Mjöll hress að lokum.

Sáttur með frænkurnar
Erpur Eyvindarson var ánægður með framtak frænkna sinna. „Þetta er náttúrulega meiriháttar „legendary“, frænkur á pungnum? Þetta er stórkostlegt, þær eru svo mikil „legend“ þessar frænkur mínar. Ég stend náttúrulega þvílíkt með þeim og verð eiginlega að reyna að koma á Mýrarboltann um leið og ég kemst frá vinnu,“ segir tónlistarmaðurinn, sem spilar á Þjóðhátíð á föstudaginn og á Dillon á laugardag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.