Bíó og sjónvarp

Frumraun handritshöfundar sem leikstjóra

Sara McMahon skrifar
Jason Statham fer með hlutverk fyrrverandi hermanns í kvikmyndinni Hummingbird. Hann þykir sýna á sér nýjar hliðar í hlutverkinu.
Jason Statham fer með hlutverk fyrrverandi hermanns í kvikmyndinni Hummingbird. Hann þykir sýna á sér nýjar hliðar í hlutverkinu.
Hummingbird er fyrsta kvikmynd Stevens Knight sem leikstjóra. Knight á að baki langan og farsælan feril sem handritshöfundur og samdi meðal annars handritin að kvikmyndunum Dirty Pretty Things og Eastern Promises, sem skartaði Viggo Mortensen og Naomi Watts í aðalhlutverkum.

Hummingbird segir frá Joseph Smith, hermanni sem snýr heim til Englands frá Afganistan en á í erfiðleikum með að aðlagast lífinu á nýjan leik. Hann endar á götunni og eftir að ráðist er á hann að tilefnislausu brýst Smith inn á ókunnugt og ríkmannlegt heimili þar sem hann gerir að sárum sínum og hvílist. Eigandi íbúðarinnar er að heiman og ákveður Smith að dvelja áfram í íbúðinni og gera um leið tilraun til þess að ná tökum á lífi sínu að nýju. Þegar vinkona hans er myrt af glæpamanninum Max Forrester hyggst Smith hefna hennar með ófyrirséðum afleiðingum.





Með helstu hlutverk fara Jason Statham, Agata Buzek, Christian Brassington, Vicky McClure, Benedict Wong og Ger Ryan. Myndin var að mestu tekin upp í London að nóttu til og fóru tökur meðal annars fram í hverfum þar sem heimilislaust fólk heldur mikið til. Statham lagðist í mikla rannsóknarvinnu er hann bjó sig undir hlutverkið og ræddi til að mynda við fyrrverandi hermenn um þau vandamál sem þeir standa frammi fyrir að herþjónustu lokinni.

Kvikmyndin fær sæmilega dóma og deilir fólk þá helst um hlutverk Stathams, en sumir vilja meina að hann njóti sín best í hasarhlutverkum. Hummingbird hlýtur 5,0 í einkunn á vefsíðunni Rottentomatoes og 6,2 á Imdb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×