KR-ingar endurheimta sína stráka í körfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2013 09:00
Pavel Ermolinskij skrifaði í fyrradag undir tveggja ára samning við KR og mun spila með liðinu í Dominos-deildinni. Þetta er gríðarlegur liðsstyrkur en Pavel var kosinn besti leikmaður deildarinnar þegar hann lék síðast með liðinu veturinn 2010 til 2011. Það er ljóst að KR-ingar verða ekki árennilegir með Pavel í fararbroddi. Það vekur athygli að þótt Pavel sé ekki uppalinn í Vesturbænum er hann enn einn leikmaðurinn sem kemur aftur í KR eftir að hafa spilað annars staðar síðustu ár. Í fyrra sneru aftur þeir Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson en í sumar voru þrír uppaldir KR-ingar komnir heim áður en Pavel ákvað að semja við KR. Þetta eru þeir Magni Hafsteinsson, Darri Hilmarsson og Matthías Orri Sigurðarson. Sá síðastnefndi er yngri bróðir landsliðsbakvarðarins Jakobs Sigurðarsonar og var búinn að vera í skóla í Bandaríkjunum. Magni er kominn aftur í KR eftir níu ára fjarveru og Darri er búinn að vera í burtu í þrjú tímabil. Allir hafa þessir strákar unnið Íslandsmeistaratitilinn með félaginu og einhver þeirra hefur tekið þátt í að vinna alla stóra titla KR-liðsins á þessari öld (2000, 2007, 2009 og 2011).
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Í beinni: Ísland - Litháen | Verða að vinna Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Finnur Freyr í veikindaleyfi Gaz-leikur Pavels: „Það eru margir hákarlar að synda í kringum Val“ „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frábæran fjórða leikhluta Flottur leikur Elvars í sigri í Evrópubikarnum Dagur Kár neyðist til að hætta „Ótrúlegt að hann hafi ekki fæðst í Keflavík“ Hvar er þessi? „Þetta er eitthvað biblíudæmi“ GAZið: „Þegar svona mikil velgengni er, þá kemur smá doði í mannskapinn“ „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Beeman með sýningu í fyrsta sigri nýliðanna Uppgjörið: Grindavík - Valur 67-61 | Grindavík skrefi á undan Val Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 103-77 | Unnu Íslandsmeistarana en steinlágu gegn nýliðunum Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Ótrúleg vika í lífi Teits Örlygs: „Skiljanleg viðbrögð“ Engir eftirmálar af látunum í Smáranum Njarðvík semur við eina unga og efnilega Davíð dæmir hjá Dani í Skotlandi Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frábæran fjórða leikhluta