Bíó og sjónvarp

Þrenna á þrendándanum

Blue Jasmine er á meðal þeirra mynda sem frumsýndar verða annað kvöld.
Blue Jasmine er á meðal þeirra mynda sem frumsýndar verða annað kvöld.
Þrjár kvikmyndir eru frumsýndar á þeirri óheillvænlegu dagsetningu, föstudeginum þrettánda. Sú fyrsta nefnist Blue Jasmine og er í leikstjórn Woody Allen. Myndin skartar Cate Blanchett í hlutverki yfirstéttarfrúr sem lifir áhyggjulausu lífi á Manhattan. Þegar efnaður eiginmaður hennar, sem leikinn er af Alec Baldwin, ákveður skyndilega að skilja við hana hrynur líf hennar til grunna.



Önnur mynd sem frumsýnd verður er Aulinn ég, eða Despicable Me 2. Í myndinni er Gru fenginn til liðs við „And-Varmenna Liðið“ til þess að uppræta nýjan og voldugan ofurglæpamann sem heitir Eduardo.



Spennumyndin Malavita verður einnig frumsýnd annað kvöld. Með helstu hlutverk fara Robert De Niro, Michelle Pfeiffer og Dianna Agron og leikstjóri myndarinnar er Luc Besson. Myndin segir frá mafíuforingja sem gerist uppljóstrari fyrir lögregluna og er settur í vitnavernd. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir lögreglu að halda bakgrunni fjölskyldunnar leyndum tekst henni ævinlega að koma upp um sig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.