Bíó og sjónvarp

Martröð hvers foreldris

Sara McMahon skrifar
Jake Gyllenhaal fer með hlutverk rannsóknarlögreglumannsins Loka í kvikmyndinni Prisoners. Terrence Howard og Viola Davis fara með hlutverk foreldra barns sem hefur verið rænt.
Jake Gyllenhaal fer með hlutverk rannsóknarlögreglumannsins Loka í kvikmyndinni Prisoners. Terrence Howard og Viola Davis fara með hlutverk foreldra barns sem hefur verið rænt.
Spennumyndin Prisoners skartar Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal í helstu hlutverkum. Myndin er í leikstjórn Denis Villeneuve og segir frá brottnámi tveggja telpna og eftirmálum þess.

Myndin hefst á því að nágrannafjölskyldurnar Dover og Birch eyða saman þakkargjörðarhátíðinni. Sex ára gamlar dætur hjónanna, Anna Dover og Joy Birch, fara að matnum loknum út að leika sér. Þegar fullorðna fólkið fer að lengja eftir stúlkunum áttar það sig á því að þær eru á bak og burt.

Lögreglan er kölluð til og fer rannsóknarlögreglumaðurinn Loki fyrir leitinni. Húsbíll finnst skammt frá og handtekur lögreglan eiganda bílsins, mann að nafni Alex Jones. Vegna skorts á sönnunargöngum er Jones sleppt úr haldi að yfirheyrslum loknum. Þetta kemur Keller Dover, föður Önnu, í mikið uppnám og hann ákveður að taka málin í eigin hendur, rænir Jones og heldur honum föngnum í von um að fá upplýsingar um líðan og staðsetningu stúlknanna.

Með aðalhlutverk fara Hugh Jackman, Jake Gyllenhaal, Viola Davis, Maria Bello, Terrence Howard, Paul Dano og Melissa Leo. Sem áður segir er myndin í leikstjórn Denis Villeneuve, en kvikmynd hans frá árinu 2010, Incendies, var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin það árið.

Prisoners hefur hlotið mikið lof og fékk 8,3 í einkunn á vefsíðunni Imdb og 80 prósent í einkunn á Rottentomatoes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.