Bíó og sjónvarp

Skipsrán og ömurlegt gamalmenni

Tom Hanks fer með hlutverk skipstjórans Richards Phillips, en sjóræningjar réðust á skip hans árið 2009.
Tom Hanks fer með hlutverk skipstjórans Richards Phillips, en sjóræningjar réðust á skip hans árið 2009.
Captain Phillips

Tom Hanks fer með hlutverk skipstjórans Richards Phillips, en sjóræningjar réðust á skip hans árið 2009. Handrit myndarinnar er byggt á bók sem Phillips ritaði um atburðinn og kallast A Captain‘s Duty: Somali Pirates, Navy SEALs, and Dangerous Days at Sea. Leikstjóri myndarinnar er Paul Greengrass, sem leikstýrði meðal annars Bourne Ultimatum.

Possession

Svartir sunnudagar snúa aftur. Á sunnudag verður „költ“-myndin Possession með Isabelle Adjani í aðalhlutverki sýnd í Bíói Paradís.



Bad Grandpa

Jackass-hópurinn snýr aftur í gamanmyndinni Bad Grandpa. Johnny Knoxville leikur Irving Zisman sem ætlar að fylgja barnabarni sínu til föður síns sem býr í öðru fylki. Á leiðinni taka þeir upp á ýmsu sem kemur grunlausu fólki í opna skjöldu.

Frances Ha

Frances, sem leikin er af Gretu Gerwig, býr í New York og hefur sökkt sér í dagdrauma. Myndin er í leikstjórn Noahs Baumbach, sem á að baki gamanmyndina Squid and the Whale. Frances Ha er falleg gamansaga sem hefur fengið góðar viðtökur áhorfenda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.