Sport

Var rúmliggjandi á tímabili og í uppgjafarhug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ísland mun eiga skíðagöngumann á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Hér er Sævar Birgisson með gönguskíðin sín þegar hann var við æfingar í Austurríki á dögunum.
Ísland mun eiga skíðagöngumann á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Hér er Sævar Birgisson með gönguskíðin sín þegar hann var við æfingar í Austurríki á dögunum. Mynd/Úr einkasafni
„Það er búið að snjóa töluvert og þetta er það besta sem maður kemst í á Norðurlöndunum eins og staðan er núna,“ segir skíðagöngukappinn Sævar Birgisson. Sævar hefur verið við æfingar í Hlíðarfjalli á Akureyri í vikunni ásamt Brynjari Leó Kristinssyni.

Báðir stefna á þátttöku í Vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi í febrúar. Þá verða tuttugu ár síðan Ísland átti síðast fulltrúa í skíðagöngukeppni leikanna. Síðan Daníel Jakobsson og Rögnvaldur Ingþórsson kepptu í Lillehammer 1994 hefur Ísland aðeins átt fulltrúa í alpagreinum.

Sævar hefur þegar náð lágmarkinu fyrir leikana í sprettgöngu (skaut) og 15 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð. Brynjar Leó vinnur að því hörðum höndum.

Sævar þekkir vel til í Lillehammer en þar gekk hann í skíðamenntaskóla á árunum 2005-2008. Sauðkrækingurinn uppaldi, sem varð 25 ára á árinu, ætlaði sér stóra hluti.

xxxx
Rúmliggjandi um tíma

„Fljótlega eftir að ég kláraði skólann varð ég hálfónýtur í nokkur tímabil,“ segir Sævar sem greindist með hryggikt. Hann segist hafa íhugað að hætta keppni.

„Ég var eiginlega búinn að gefast upp á þessu. Á tímabili var ég rúmliggjandi,“ segir Sævar sem fékk lyf við gigtinni. Ekki tók betra við þegar hann fékk gat á magann í miðri keppni. Hann segir gigtina að einhverju leyti ættgenga en ekki hafi hjálpað til að hann gekk fram af sjálfum sér árin þrjú í Noregi.

„Ég fékk ýmis einkenni og var greindur með hitt og þetta,“ segir Sævar og lýsir stöðu sinni í dag þannig að hann sé 95% góður. Hann hefur verið á lyfjum við gigtinni í þrjú ár en kaflaskil urðu þegar hann landaði Íslandsmeistaratitlinum árið 2011 eftir þrjú erfið ár á undan. Þá kviknaði áhugi á að taka skíðagönguna föstum tökum á nýjan leik. Þrjú ár voru í Vetrarólympíuleikana.

Flutti til Noregs

„Það var kannski meira draumur en markmið í fyrstu. En þegar æfingar gengu vel og líkaminn svaraði vel tók ég hlé frá námi mínu og flutti til Noregs,“ segir Sævar sem var byrjaður í námi við Háskólann á Bifröst.

„Ég ákvað að gera þetta almennilega fyrst ég væri að þessu,“ segir Sævar og nú er hann á lokametrunum. Nú eru 98 dagar þar til eldurinn verður tendraður í Sochi og æfingar hafa verið stífar.

Sævar er tiltölulega nýkominn úr tveggja vikna æfingabúðum í Austurríki. Þar höfðu þeir Brynjar Leó bækistöðvar í um 1.800 metra hæð og æfðu í 2.600 metra hæð.

„Í Sochi verður keppt í 1.500 metrum svo að við þurfum að aðlagast því,“ segir Sævar sem heldur í næstu viku til Svíþjóðar og svo Noregs.

Þeir Brynjar Leó hafa æft með sænsku félagi undanfarið ár enda í sérflokki íslenskra skíðagöngumanna sem stendur. Þeir eru hins vegar í þeirri stöðu að þurfa að berjast um eitt laust sæti sem Íslandi stendur til boða í skíðagöngukeppninni í Sochi.

Enginn leiðindarígur

„Það er ekkert atriði hjá okkur. Við æfum mikið saman og njótum góðs af því. Það þýðir ekkert að vera með leiðindaríg,“ segir Sævar. Hann bendir á að þeir hafi ekki haft neina æfingafélaga á Íslandi í mörg ár og því treyst hvor á annan.

Sævar keppir á móti í Finnlandi um miðjan nóvember. Góður árangur gæti lyft honum upp á heimslistanum. Kæmist Sævar ofar en í 300. sæti á heimslistanum yrði það til þess að Ólympíulágmark myndi duga þeim báðum. Ekki þyrfti að velja á milli þeirra tveggja varðandi eitt laust sæti.

„Við vonumst til þess að það verði svoleiðis.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×