Ásgeir Börkur fundaði með Bjarna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2013 06:00 Ásgeir Börkur í leik með Fylkismönnum í sumar. fréttablaðið/valli „
Hugur minn stefnir út,“ segir Árbæingurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem æfir með Fylki þessa dagana. Börkur er samningslaus en æfir með uppeldisfélaginu á meðan unnið er að því að koma honum að hjá erlendu félagi. Athygli vakti í nóvember þegar Börkur æfði með Frömurum. Töldu einhverjir að miðjumaðurinn væri á leið í raðir Framara sem hafa farið mikinn í félagaskiptum. „Ég bý náttúrulega þarna við hliðina á Framheimilinu og hafði farið á fund með Bjarna. Hann sagði lítið mál að ég mætti á eina æfingu,“ segir Börkur. Æfingarnar hafi ekki orðið fleiri. En var ekki fleira rætt á fundi þeirra Bjarna en leyfi til að mæta á eina æfingu? „Vissulega var fleira rætt en bara farið yfir stöðuna. Hann vildi heyra í hvaða pælingum ég væri,“ segir Börkur sem nú klæðist appelsínugulu á æfingum með Fylkismönnum. „Stemningin í Árbænum er alltaf góð. Þeir eru að vinna í sínum málum, hafa fengið tvo leikmenn en ég veit ekki hvort fleira er í gangi.“ Ásgeir Börkur hélt til Noregs síðastliðið vor í láni frá Fylkismönnum. Miðjumaðurinn spilaði með norska liðinu þar til hann sneri aftur til Fylkis um mitt tímabil. Heimkoma hans var í takt við viðsnúning á gengi Fylkis sem var afleitt í fyrri umferðinni en stórgott í þeirri síðari.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira