Frábær fjórði leikhluti hjá Keflvíkingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2013 21:17 Darrel Lewis lék vel í kvöld. Mynd/Daníel
Keflvíkingar eru komnir upp í fimmta sætið í Dominosdeild karla í körfubolta eftir 15 stiga sigur á KR, 100-85, í DHL-höllinni í kvöld en liðin höfðu þar með sætaskipti í deildinni. Keflvíkingar unnu síðustu fjórar mínútur leiksins með fimmtán stigum. Keflvíkingar voru þarna að vinna fjórða deildarsigur sinn í röð en KR-ingar hafa aftur á móti tapað tveimur fyrstu leikjum sínum með Bandaríkjamennina Darshawn McClellan og Brandon Richardson báða innanborðs. Darrel Lewis skoraði 30 stig fyrir Keflavík, Michael Craion var með 27 stig og 13 fráköst og Billy Baptist skoraði 21 stig og tók 14 fráköst. Darshawn McClellan var stigahæstur hjá KR með 21 stig en aðeins átta þeirra komu í þremur síðustu leikhlutunum. Brynjar Þór Björnsson var með 12 stig og 7 stoðsendingar og Finnur Atli Magnússon skoraði 12 stig. KR-ingar byrjuðu leikinn vel með Darshawn McClellan í fararbroddi en KR var ellefu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 28-17. McClellan skoraði 13 stig í fyrsta leikhlutanum. Keflvíkingar náðu að minnka muninn niður í tvö stig fyrir hálfleik, 45-43 fyrir KR, með því að vinna annan leikhlutann 26-17. Darrel Lewis skoraði ellefu stig í leikhlutanum. Leikurinn hélst jafn og spennandi í seinni hálfleiknum en KR var einu stigi yfir, 71-70, fyrir lokaleikhlutann. Keflvíkingar tóku öll völd í stöðunni 79-77 fyrir Keflavík og unnu síðustu fjórar mínútur leiksins 23-8.
Dominos-deild karla Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira