Lífið

„Gæti samið þetta á klukkutíma“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

„Ég gæti samið þetta á klukkutíma,“ segir Liam Gallagher um lagið Get Lucky í viðtali við The Sun.

Gallagher, sem þekktastur er fyrir að hafa verið söngvari hljómsveitarinnar Oasis, finnst þetta geysivinsæla lag Daft Punk ekkert merkilegt, en það er svo sem ekkert nýtt að Gallagher hrauni yfir kollega sína í fjölmiðlum.

Þá tjáði hann sig einnig um útlit sveitarinnar, en þetta franska dúó er þekkt fyrir að klæðast glansandi hjálmum.

„Ég vil ekki sjá það að fólk sé í dulargerfi. Takið af ykkur hjálmana. Leyfið okkur að sjá hvernig þið lítið út án þeirra, hvað sem þið heitið.“

Hið vinsæla lag Daft Punk má heyra í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.