Veiði

Gangan upp fyrir Glanna 65% undir tíu ára meðaltali

Fallegur veiðistaður í Norðurá. Myndin er tekin í fyrrasumar.
Fallegur veiðistaður í Norðurá. Myndin er tekin í fyrrasumar. Mynd/Svavar
Ef fylgst er með einhverri einni laxveiðiá af meiri athygli en öðrum hér á landi hlýtur það að vera Norðurá. Ekki þarf að fjölyrða um veiði sumarsins 2012 en þó kann að vera að einhverjir hafi áhuga á nákvæmri greiningu á því hvernig gekk. Nýlega kom út skýrsla Veiðimálastofnunar um veiðina í ánni í sumar, eins og má lesa um í lengra máli hér.

En það helsta fylgir hér á eftir: Í Norðurá veiddust 949 laxar á stöng, 14 bleikjur og 57 urriðar. Veiðimenn slepptu 264 löxum, eða 11% smálaxa og tæpum 83% stórlaxa. Hlutfall stórlaxa í veiðinni var 23,4% og meðalþyngd þeirra var 4,4 kíló en meðalþyngd smálaxa 2,1 kíló. Veiðin var 42,7 % undir meðalveiði árinnar fyrir tímabilið 1968 - 2012.

Nettóganga upp fyrir teljarann í Glanna var 1.134 fiskar, eða 172 silungar, 818 smálaxar og 177 stórlaxar. Hlutur stórlaxa af laxagöngunni var því tæp 15%. Gangan upp fyrir teljarann var 57% minni en árið 2011 og tæpum 65% undir meðaltali tímabilsins 2002 - 2012. Tæp 70% laxa gekk upp fyrir teljarann í júlí.

Veiðihlutfall ofan teljarans var 33,5% sem skiptist í 30,3% smálaxagöngunnar og 51,4% stórlaxagöngunnar. Veiðimálastofnun rannsakaði 122 hreistur eða af 12,9% veiðinnar. Eitt sýni reyndist af laxi af eldisuppruna en laxar af náttúrulegum uppruna höfðu dvalið 3 - 5 ár í ferskvatni, þó langstærstur hluti í 3 - 4 ár.

Stór hluti sýna, eða 27,9%, bar merki um endurtekna hrygningu og eru sýnin aldursgreind sem stórlax. Flestir slíkir laxa dvelja stuttan tíma í sjó eftir hrygningu, vaxa því lítið og stærð þeirra nær því ekki eiginlegri stórlaxastærð. Samanlagður hlutur stórlaxa í sýnatökunni reyndist því 34,5 %. Veiðin 2012 samanstóð af fimm árgöngum, frá 2005 - 2008, en klakárgangar 2006 - 2008 héldu uppi 95% veiðinnar.

svavar@frettabladid.is






×