Sport

Helga María hafnaði í 40. sæti í Austurríki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helga María Vilhjálmsdóttir.
Helga María Vilhjálmsdóttir. MYND/ÍSÍ
Skíðakappinn Helga María Vilhjálmsdóttir stóð sig best meðal íslenskra keppanda á stórsvigsmóti í Hinterreit í Austurríki í gær en hún hafnaði í 40. sæti á mótinu.

Helga María fékk því 63,80 FIS punkta en hún hafði rásnúmer 60 í gær. Freydís Halla Einarsdóttir hafnaði í 56.sæti og fékk þar með 97.18 FIS punkta.

Aðstæður voru nokkuð góðar í Austurríki í gær og gott verður á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×