Bíó og sjónvarp

Lítið um kynlíf í fyrstu stiklunni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni Fifty Shades of Grey, sem beðið er með mikilli eftirvæntingu, var frumsýnd á Cinema Con, ráðstefnu kvikmyndahúsaeigenda, í Las Vegas í dag.

Stiklan verður ekki gerð opinber strax en vefsiðan Just Jared er með allar helstu upplýsingar um hana.

Í stiklunni er ekki einblínt á kynlífsatriði, sem nóg er af í samnefndri bók, heldur frekar fjallað um ástarsambandið á milli Christian Grey, sem leikinn er af Jamie Dornan, og Anastasiu Steele, sem leikin er af Dakota Johnson.

Hafa margir blaðamenn jafnvel líkt þessu fyrsta sýnishorni við kvikmyndina Love Story sem frumsýnd var árið 1970

Fifty Shades of Grey verður frumsýnd 14. febrúar, á sjálfan Valentínusardaginn, á næsta ári.

Jamie og Dakota á setti.
Fyrsta veggspjaldið fyrir myndina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.