Lífið

"Það er ekkert svo mikið reynt við mig“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Saga.
Saga. vísir/daníel
Leikkonan og spéfuglinn Saga Garðarsdóttir var gestur Harmageddon í dag en hún treður upp á Reykjavík Comedy Festival næstu helgi.

Hún segir að það séu ekki margir strákar sem reyni við sig þó hún sé fyndin.

„Strákar sem eru fyndnir þykja yndislegir og æðislegir. Stelpur sem eru fyndnar þykja stundum smá ógnvekjandi,“ segir Saga eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti.

Þá segir hún að stelpur flykkist að karlkyns grínistum eftir uppistand en að það sama sé ekki uppi á teningnum þegar hún hefur farið með gamanmál.

„Það er ekkert svo mikið reynt við mig,“ bætir Saga við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×