Lífið

Skrifar ævisögu Beyoncé

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Beyoncé.
Beyoncé. vísir/getty
Rithöfundurinn J. Randy Taraborrelli gefur út ævisögu söngkonunnar Beyoncé á næsta ári hjá bókaforlaginu Grand Central Publishing. Bókin er ekki unnin í samvinnu við söngkonuna.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Grand Central Publishing verður bókin byggð á ítarlegum rannsóknum J. Randy sem og viðtölum við fólk í lífi söngkonunnar sem hefur mótað feril hennar.

J. Randy hefur einnig skrifað ævisögur Elizabeth Taylor, Madonnu og Michael Jackson þannig að Beyoncé ætti að vera í góðum höndum.

„Ég get ekki hugsað mér áhugaverðara viðfangsefni en Beyoncé,“ segir rithöfundurinn í fréttatilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×