Lífið

Fór í þriðju krabbameinsmeðferðina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hugh Jackman.
Hugh Jackman. vísir/getty
Ástralski leikarinn Hugh Jackman er búinn að fara undir hnífinn í þriðja sinn á síðustu tólf mánuðum til að fjarlægja húðkrabbamein.

Leikarinn sagði fyrst frá því þegar hann fékk grunnfrumukrabbamein í nóvember árið 2013 og síðan í maí á þessu ári. Nýverið lét hann fjarlægja þriðja æxlið samkvæmt heimildum Us Weekly.

Hugh setti mynd á Instgram-síðu sína í gær þar sem hann hvatti aðdáendur sína til að nota sólarvörn. Í samtali við Associated Press segir hann að líklegt sé að hann fái húðkrabbamein oftar um ævina.

„Ég man ekki eftir að mér hafi verið sagt að setja á mig sólarvörn þegar ég var að alast upp í Ástralíu,“ segir hann.

SUNSCREEN!

A photo posted by Hugh Jackman (@thehughjackman) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×