Lífið

Horfir reglulega á klám

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Amy.
Amy. vísir/getty
Leikkonan Amy Poehler heimsótti útvarpsþátt Howards Stern í gær til að kynna endurminningar sínar, Yes Please.

Amy skildi við grínarann Will Arnett í apríl á þessu ári og fór á stefnumót með leikaranum John Stamos stuttu seinna.

„Það var nýtt og skrýtið,“ sagði Amy um hvernig það væri að fara á stefnumót eftir tíu ára hjónaband.

„Ég fór aldrei á stefnumót þegar smáskilaboð voru til. Ég gifti mig árið 2003 og allt í einu hugsa ég: Já, einmitt. Nú sendir maður einhverjum skilaboð. Það er nýtt," bætti Amy við.

„Ég man að ég borðaði kvöldmat með John Stamos. Myndarlegir menn eru yndislegir. Við vorum að borða og ég hugsaði: Já, kannski er þetta stefnumót! En ég vissi það ekki," sagði Amy um stefnumótið og bætti við að hún hefði líklega klúðrað því.

Amy og Will eiga saman tvö börn, Archie, sex ára og Abel, fjögurra ára.

„Ég veit ekki hvort mig langar að búa með einhverjum aftur,“ sagði Amy við Howard. Þá bætti hún við að hún horfi reglulega á klám.

„Ég vil hafa klám eins og gamanmyndir: Búnar til af atvinnumönnum, með konum sem eru á toppnum. Ég vil sjá atvinnukonur sem hafa gaman að þessu. Ég vil að allir líti vel út og séu góðir í vinnunni sinni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×