Lífið

Tísti beint frá fæðingu sonarins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Robbie Williams eignaðist son með eiginkonu sinni Ayda Field í gær. Það ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum þar sem Robbie tísti í beinni frá fæðingardeildinni.

Útsendingin byrjaði með mynd af hælum Ayda sem voru ansi skrautlegir.

Svo kom myndband af Ayda að dansa.

Síðan var komið að Robbie að hjálpa eiginkonu sinni. Hann ákvað að dansa og syngja við lag sitt Candy.

Svo hjálpaði hann meira með samúðarverkjum.

Þá tók við annað myndband þar sem Robbie sýndi hvernig lífið væri á fæðingardeildinni. 

Svo voru belgir Ayda sprengdir.

Svo gerði Robbie grín að nærfötunum sem hann var í.

Hann birti líka myndir og fullvissaði aðdáendur sína að allt væri í góðu.

Robbie söng líka Let It Go úr teiknimyndinni Frozen.

Og fjórtán klukkustundum eftir að fyrsta tístið var birt var sonurinn kominn í heiminn.

Ekki var öllum skemmt yfir þessu uppátæki Robbies og kallaði söngvarinn Liam Gallagher hann feitan fávita. Það er svo sem ekki skrýtið þar sem andað hefur köldu á milli þeirra tveggja um árabil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×