Matur

Léttir sprettir: Austurlenskt byggsalat

Friðrika Hjördís Geirsdóttir skrifar

Austurlenskt byggsalat

Íslenskt bygg er mjög trefjaríkt. Trefjar eru taldar lækka blóðfitu í líkamanum auk þess sem að þau hafa góð áhrif á meltingarkerfið. Ráðlagður dagskammtur fyrir fullorðna er um 25-30 g en talið er að hin venjulegi íslendingur neyti aðeins rétt um helming af þessum skammti. Með því að auka neyslu á grænmeti og kornmat komum við smám saman til móts við þessa þörf.

100 g íslenskt bygg, soðið skv. leiðbeiningum á pakkningu og kælt

1 rauð papríka, fræhreinsuð og skorin í bita

200 g rauðkál, rifið

1 gulrót, rifin

2 vorlaukar, sneiddir

25 g kóríander, saxað

1 1/2 msk hnetusmjör

3 msk sojasósa

1 msk sesamolía

1 msk hrísgrjónaedik

1 1/2 hvítlauksrif, pressað

1 tsk rifið engifer

1 msk hunang safi af

1 límónu

Salt og nýmalaður pipar

Blandið öllu búlgur, papríku, rauðkáli, gulrót, vorlauk og kóríander saman í skál. Hrærið hnetusmjöri, sojasósu, sesamolíu, hrísgrjónaediki, hvítlauk, engifer, hunangi og límónu saman og hellið yfir grænmetið. Kryddið með salti og pipar og berið fram.

Léttir sprettir á Facebook


Tengdar fréttir

Gómsætir kaldir hafragrautar

Súkkulaði-, kanil- og bananagrautur og hindberja- og mangógrautur. Úr Léttum sprettum á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.