„Það var ódýrara fyrir aðstandendur myndarinnar að gera myndina hér. Gjaldmiðillinn er hagstæður og þeir fá tuttugu prósenta endurgreiðslu af framleiðslukostnaði frá íslenska ríkinu. Að auki er íslenskt starfsfólk í kvikmyndabransanum frábært – á heimsmælikvarða,“ bætir Ragnar við.
„Við sáum tækifæri í þessari mynd og teljum að hún eigi eftir að fara víða. Við höfum trú á verkefninu en myndinni hefur verið vel tekið alls staðar og aðsóknin í Noregi hefur verið mjög góð,“ segir Ragnar um ástæðuna að baki því að Sagafilm framleiddi myndina. Myndin hefur nú þegar verið sýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum og var frumsýnd í Noregi fyrir stuttu.
Myndin var tekin upp víðs vegar um landið – þar á meðal í stúdíói Sagafilm á Laugavegi, í Hvalfirði, Hafnarfirði, á Eyrarbakka og Stokkseyri. Ýmislegt gekk á í tökum og þurfti meðal annars að ferja heilt hús á milli staða.
„Við fengum lánað hús á Selfossi og fluttum það á Eyrarbakka. Það var meiri háttar vesen og við þurftum að loka götum. En það var algjörlega þess virði.“

Norska fyrirtækið Tappeluft framleiðir myndina ásamt Sagafilm og hugsanlegt er að þessi tvö fyrirtæki haldi samstarfinu áfram.
„Við vorum öll mjög ánægð með samstarfið. Við erum að skoða nokkur verkefni en ekkert sem ég get sagt frá á þessari stundu,“ segir Ragnar.
Leikstjóri myndarinnar er Tommy Wirkola sem leikstýrði einnig fyrstu myndinni, Dead Snow, sem sló óvænt í gegn. Í kjölfarið leikstýrði hann Hollywood-myndinni Hansel & Gretel: Witch Hunters og vinnur nú að myndinni What Happened to Monday? með sænsku leikkonunni Noomi Rapace í aðalhlutverki.
Með helstu hlutverk í Dead Snow: Red vs. Dead fara Amrita Acharia, Jocelyn DeBoer, Ørjan Gamst, Vegar Hoel og Martin Starr.