Bíó og sjónvarp

Tökur á Stjörnustríði hefjast í maí

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Harrison Ford, Carrie Fisher og Mark Hamill í hlutverkum sínum í Return of the Jedi.
Harrison Ford, Carrie Fisher og Mark Hamill í hlutverkum sínum í Return of the Jedi.
Tökur hefjast á sjöundu Stjörnustríðsmyndinni í Pinewood-kvikmyndaverinu í maí. Þetta hafa framleiðendur myndarinnar staðfest, en henni er ætlað að vera fyrsti hluti í nýjum þríleik.

Myndin gerist þrjátíu árum eftir Return of the Jedi, sjötta kafla seríunnar (en þriðju myndinni í framleiðsluröðinni). Nú er greint frá því að þrír ungir leikarar muni fara með aðalhlutverk myndarinnar en áður stóð til að þau Carrie Fisher, Mark Hamill og Harrison Ford færu með stór hlutverk í myndinni.

Þau voru í aðalhlutverkum fyrstu þriggja myndanna en framleiðendurnir segja að eiga megi von á „kunnuglegum andlitum“ í nýju myndinni. Er þar líklega vísað til gamla gengisins. Fisher, Hamill og Ford hafa lengi verið orðuð við myndina en þó hefur ekkert fengist staðfest frá framleiðendunum.

Aðrir sem orðaðir eru við hlutverk í myndinni eru Benedict Cumberbatch, Lupita N'gongo og Girls-stjarnan Adam Driver, en sá síðastnefndi er talinn líklegur til að leika illmenni.

Leikstjórinn J.J. Abrams er að eigin sögn lítið spenntur fyrir að taka myndina í Bretlandi, þar sem Pinewood-kvikmyndaverið er staðsett, en hann hefur aldrei leikstýrt mynd annars staðar en í Los Angeles.

Star Wars: Episode VII verður frumsýnd þann 18. desember á næsta ári.


Tengdar fréttir

Solo verður sóló

Enn berast fregnir úr Star Wars-heimum. Auk nýju myndarinnar, sem stefnt er á að frumsýna árið 2015, stendur til að gera sérstakar myndir um þá Han Solo og Boba Fett.

Ný Star Wars mynd árið 2015

Walt Disney hefur eignast Lucasfilm og hyggst gefa út nýjar Star Wars myndir á næstu árum. George Lucas mun sjálfur starfa sem skapandi ráðgjafi við gerð sjöundu Star Wars myndarinnar sem verður frumsýnd árið 2015.

Ford aftur í Stjörnustríð

Harrison Ford mun endurtaka hlutverk sitt sem Han Solo úr Stjörnustríðsmyndunum í nýjustu kvikmynd seríunnar. Vefsíðan Latino Review greinir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.