Frumflytur lag með maltneskri Eurovision-stjörnu
„Samstarf okkar kom til þannig að ég var að túra með Heru Björk á milli tónlistarhátíða og Chiara var oft á sömu stöðum og við. Hún tók eftir því að Hera fékk betri þjónustu en flestir og sá að ég var duglegur að passa upp á hlutina. Einn daginn kom hún til mín og spurði hvort ég væri til í að sjá líka um sig,“ segir Valgeir sem var ekki sannfærður um að það gæti gengið upp.
„Ég hugsaði mig um í nokkrar vikur því ég sá ekki hvernig þetta myndi ganga upp þar sem Ísland og Malta eru á hvort á sínum endanum á Evrópu. Svo hugsaði ég: Þetta getur allt verið unnið í gegnum netið. Nú erum við búin að taka upp fjögur lög saman, sem við gerum þannig að við Öggi erum á FaceTime í stúdíóinu hennar á Möltu og biðjum hana að gera hitt og þetta. Svo fáum við sendan sönginn og Öggi klárar málið.“
Varðandi nýja lagið, Mermaid in Love, segir Valgeir það hafa orðið til í áföngum.
„Hugmyndina fékk ég þegar við vorum að spila saman í Þýskalandi síðasta sumar. Ég skrifaði niður nokkrar línur. Við Öggi hittumst svo nokkrum vikum síðar, töluðum aðeins um hugmyndina og hann kom strax með litla melódíu. Svo skoðuðum við þetta ekki neitt fyrr en fyrir tveimur vikum. Þá tókum við Pétur með okkur í sumarbústað og kláruðum lagið og fleiri lög sem við erum að ákveða hvað við gerum við.“
Tengdar fréttir
Farnir út að sigra í Eurovision
"Vitið þið hvað? Þetta eru síðustu tónleikarnir okkar áður en við fljúgum til Danmerkur til að sigra í Eurovision,“ sagði Heiðar Örn Kristjánsson, gítarleikari og söngvari í Pollapönki, við unga aðdáendur á Selfossi daginn áður en haldið var utan.
Strákarnir eru stútfullir af ást
Sjáðu myndböndin.
Sérútbúið trommusett fyrir Pollapönk
Eitt vinsælasta og þekktasta trommusett landsins, Dixarinn, fylgir Pollapönki til Kaupmannahafnar í Eurovision.
Fyrsta æfingin á Eurovision-sviðinu
Hinn armenski Aram MP3 æfði sig fyrstur allra.
Þetta er gott flipp
Álitsgjafarnir Siggi Hlö, Rikki G, Heiðar Austmann og Friðrik Ómar sitja fyrir svörum
Pollapönkarar spreyta sig á þekktum slagara
Tóku Girls and Boys með Blur í Kaupmannahöfn.