Lífið

Anita Briem eignaðist stúlku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Anita Briem og eiginmaður hennar, Constantine Paraskevopoulus , buðu litla prinsessu í heiminn í vikunni. Hnátan var rúmir 52 sentímetrar og þrettán merkur og hefur hlotið nafnið Mia Anita .

Er þetta fyrsta barn Anitu og Constantine en fjölskyldan er búsett í Los Angeles. Anita var sett 28. desember en Mia litla lét bíða eftir sér fram yfir áramótin.

Anita
prýddi forsíðu Lífsins , fylgirits Fréttablaðsins, um miðjan desember á síðasta ári og sagði meðgönguna vera meira undur en hún hefði getað ímyndað sér.

„Ég er orðlaus næstum daglega yfir öllu því sem líkami minn er að gera. Þetta er margfalt meira undur en ég gat ímyndað mér. Svo hefur þetta líka verið ánægjulegra. Mig langaði lengi til að búa til barn en var mjög hikandi og áhyggjufull yfir að kippa mér svona af markaðinum. Ég hef unnið alveg rosalega hörðum höndum að mínum ferli til að geta klifið hærra og haft meira frelsi til að velja mér leikstjóra til að vinna með og verkefni sem hafa virkilega merkingu fyrir mig. Þó að ég hafi áorkað miklu er þetta allt ósköp brothætt. En þetta kraftaverk gaf mér þá gjöf að sleppa aðeins óttanum og kvíðanum. Maður fær bara að vera barnshafandi í fyrsta skipti einu sinni og ég ætla ekki að leyfa neinum að taka frá mér þá stórbrotnu upplifun.“

Lífið óskar Anitu og Constantine innilega til hamingju með frumburðinn!


 
Anita myndaði meðgönguna í bak og fyrir.Mynd/Einkasafn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.