Elsa Sæný Valgeirsdóttir var bæði kosin besti þjálfari fyrri hluta Mizuno-deildar karla í blaki sem og í úrvalslið fyrri hluta Mizuno-deildar kvenna.
HK vann fjögur af sjö verðlaunum í boði í Mizuno-deild karla því auk þjálfarans voru þeir Fannar Grétarsson, Lúðvík Már Matthíasson og Stefán Gunnar Þorsteinsson einnig valdir í úrvalsliðið.
Afturelding vann fjögur af sjö verðlaunum í Mizuno-deild kvenna en liðið átti 67 prósent leikmanna í úrvalsliðinu. Elsa Sæný Valgeirsdóttir spilar með Stjörnunni og hún ásamt Fríðu Sigurðardóttur úr HK voru þær einu sem komust í liðið sem spila ekki með Mosfellsliðinu.
Blaksamband Íslands veitti nú í fyrsta sinn viðurkenningu til þeirra leikmanna sem skarað hafa framúr í Mizunodeildunum í fyrri umferð Íslandsmótsins.
Um er að ræða lið sem samanstendur af leikmönnum úr öllum stöðum á vellinum en þjálfarar og leikmenn skila inn atkvæðaseðlum um valið.
MIZUNO lið fyrri umferðar karla:
Þjálfari: Elsa Sæný Valgeirsdóttir, HK
Kantur: Róbert Karl Hlöðversson, Stjörnunni
Miðja: Fannar Grétarsson, HK
Uppspilari: Lúðvík Már Matthíasson, HK
Díó: Piotr Kempisty, KA
Móttaka: Emil Gunnarsson, Stjörnunni
Frelsingi: Stefán Gunnar Þorsteinsson, HK
MIZUNO lið fyrri umferðar kvenna:
Þjálfari: Matthías Haraldsson, Þrótti Nes
Kantur: Elsa Sæný Valgeirsdóttir, Stjörnunni
Miðja: Fríða Sigurðardóttir, HK
Uppspilari: Miglena Apostolova, Aftureldingu
Díó: Thelma Dögg Grétarsdóttir, Aftureldingu
Móttaka: Zaharina Filipova, Aftureldingu
Frelsingi: Alda Ólína Arnarsdóttir, Aftureldingu
Sport