Lífið

Keyrir skriðdreka á setti með Chris Pine

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Íris Björk og Chris eyddu áramótunum saman á Kosta Ríka samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Íris Björk og Chris eyddu áramótunum saman á Kosta Ríka samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Fyrirsætan Íris Björk Jóhannesdóttir, sem bar sigur úr býtum í keppninni Ungfrú Reykjavík árið 2010, dvelur nú á Nýja-Sjálandi. Þar fara fram tökur á kvikmyndinni Z for Zacharias en Hollywood-hjartaknúsarinn Chris Pine er meðal þeirra sem leika aðalhlutverk í myndinni.

Íris Björk og Chris Pine hafa sést oft uppá síðkastið en þau eru bæði búsett í London. Íris Björk hefur ekki viljað tjá sig um sambandið við Fréttablaðið en erlendir fjölmiðlar slá því upp að þau séu meira en bara vinir.

Íris Björk hefur verið dugleg að birta myndir frá Nýja-Sjálandi á Facebook-síðu sinni og á einni þeirra sést Chris í bakgrunninum. Þá birti hún líka myndband í vikunni þar sem hún sést keyra vígalegan skriðdreka á setti myndarinnar.

Hún er ekki eini Íslendingurinn á setti því framleiðsla myndarinnar er meðal annars í höndum feðganna Þóris Snæs Sigurjónssonar og Sighvats Sigurjónssonar og Skúla Fr. Malmquist.

Chris Pine á setti Z for Zacharias.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.