Sænski bílasmiðurinn Cristian von Koenigsegg smíðar aðeins ofurbíla og einn þeirra er Koenigsegg Agera R. Hann er 1.140 hestöfl og með hámarkshraða uppá 440 km/klst. Því er það ekkert tiltökumál að láta hann lulla uppí 355 km hraða á þýskri hraðbraut, enda er slíkt ekki leyfilegt í neinu öðru landi.
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá bílnum öfluga ekið á þessari ógnarferð og erfitt er að ímynda sér að hann geti farið næstum 100 km hraðar. Svo til allir bílar sem eru á sömu ferð virðast kyrrir, svo mikill er hraði bílsins og hljóðið sem frá honum kemur er eins og sinfónía í eyrum bílageggjara.
Bílar