Íslenska handboltalandsliðið æfði í morgun í höllinni í Herning en liðið hefur hafið undirbúning sinn fyrir leik á móti Makedóníu á Evrópumótinu í handbolta á morgun.
Íslenska liðið vann frábæran sigur á Austurríkismönnum í gær og strákarnir hafa sett stefnuna á að komast í leikinn um fimmta sætið á mótinu.
Það var létt stemmning á æfingunni í dag en Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í höllinni og náði nokkrum skemmtilegum myndum sem fanga vel andrúmsloftið á æfingunni.
Það er hægt að sjá þessar myndir hans Daníels bæði hér fyrir ofan og neðan.
Létt stemmning á æfingu íslenska liðsins - myndir
Tengdar fréttir
Kári: Hef meiri leikskilning en hinir í fótboltanum
Það er ávallt létt yfir Eyjapeyjanum Kára Kristjáni Kristjánssyni. Hann fór mikinn á æfingu strákanna í dag. Raðaði inn mörkum í fótboltanum og tók svo létta glímu við Vigni Svavarsson eftir æfingu.
Enn óvissa með Arnór
Þó svo Arnór Atlason sé ekki lengur í sextán manna hópi Íslands á EM þá er ekki loku fyrir það skotið að hann muni koma aftur inn í hópinn.
Ásgeir um NFL: Skemmtilegast að horfa á Brady og Manning
Margir af strákunum okkar eru miklir áhugamenn um NFL-deildina og þeir bíða spenntir eftir leikjum kvöldsins enda eru það engir smá leikir.