Lífið

Íris Björk og Chris Pine forðast ljósmyndara á flugvelli

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Íris Björk Jóhannesdóttir og Hollywood-sjarmörinn Chris Pine lentu á flugvellinum LAX í Los Angeles á þriðjudaginn. Heimildir Vísis herma að þau hafi eytt áramótunum saman á Kosta Ríka og meðal annars farið á brimbretti saman.

Írisi og Chris reyndu að láta lítið fyrir sér fara og forðast ljósmyndara þó það hafi ekki gengið sem skildi.

Hvorki Íris né Chris hafa viljað tjá sig um sambandið en myndir náðust af þeim í París fyrir stuttu þar sem þau létu afar vel hvort að öðru.

Nýkomin til Los Angeles.
Kærðu sig ekki um myndatökur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.