Bíó og sjónvarp

Annar leikari úr Breaking Bad staðfestur í hliðarseríu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Jonathan Banks er aðdáendum Breaking Bad góðu kunnur, en hann þótti gríðarlega sannfærandi í hlutverki sínu.
Jonathan Banks er aðdáendum Breaking Bad góðu kunnur, en hann þótti gríðarlega sannfærandi í hlutverki sínu.
Leikarinn Jonathan Banks hefur verið staðfestur í hliðarseríu sjónvarpsþáttanna Breaking Bad, Better Call Saul, sem hefur göngu sína næsta haust. Það er vefsíðan Deadline sem greinir frá.

Persóna Banks, Michael „Mike“ Ehrmantraut, er aðdáendum Breaking Bad góðu kunnur, en hann þótti gríðarlega sannfærandi í hlutverki sínu.

Better Call Saul gerist að hluta til á undan Breaking Bad-þáttaraðarinnar, en einnig á eftir henni. Aðalsöguhetja nýju þáttanna er hinn furðulegi og siðlausi lögfræðingur Saul Goodman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.