Körfubolti

KR-ingar láta Leake fara

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Terry Leake.
Terry Leake. Vísir/Valli
Körfuknattleiksdeild KR hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við bandaríska leikmanninn Terry Leake Jr. Það staðfestir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, við Karfan.is.

Leake var látinn fara frá ÍR fyrr á tímabilinu en KR-ingar ákváðu að fá hann til reynslu. Hann spilaði sex leiki með KR-ingum fyrir áramót og var yfirleitt fyrsti eða annar maður inn af bekknum.

Forsvarsmenn í Vesturbænum lögðust undir feld í kringum jólin og veltu fyrir sér hvort þeir ættu að semja við kappann eða leita annað. Fór svo að samið var við Leake.

„Terry hefur smellpassað inn í liðið og er orðinn mikilvægur hluti af sterkri liðsheild sem getur fleytt KR liðinu langt í vetur,“ sagði í tilkynningu frá KR-ingum þann 6. janúar. Síðan eru liðnir nítján dagar.

KR-ingar töpuðu fyrsta deildarleiknum eftir áramót gegn Grindavík. Á eftir fylgdu tæpir sigrar á ÍR og Snæfelli en KR tapaði ekki deildarleik fyrir áramót. Leake var óvænt í byrjunarliði KR gegn Snæfelli á fimmtudaginn en Darri Hilmarsson var frá keppni vegna veikinda.

Óvíst er hvort KR-ingar verði komnir með nýjan Bandaríkjamann fyrir leik liðsins gegn Stjörnunni á fimmtudaginn. Finnur Freyr segir í samtali við Karfan.is að liðið sé í leit að stærri leikmanni í baráttuna undir körfunni.

Leake skoraði 15,8 stig og tók 5,6 fráköst að meðaltali í níu leikjum sínum með þeim svörtu og hvítu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×