Handbolti

Góður lokakafli tryggði ÍBV sigur á Selfossi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ester Óskarsdóttir var í stuði í dag.
Ester Óskarsdóttir var í stuði í dag. Vísir/Valli
Ester Óskarsdóttir og Kristrún Hlynsdóttir skoruðu sex mörk hvor þegar ÍBV lagði Selfoss 30-27 í Olísdeild kvenna í handbolta í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi fram í miðjan síðari hálfleikinn. Gestirnir leiddu óvænt í hálfleik 15-14 og enn var jafnt 23-23 þegar ellefu mínútur voru til leiksloka.

ÍBV vann hins vegar lokakaflann 7-4 og tryggði sér stigin tvö. Þuríður Guðjónsdótir og Carmen Palamariu skoruðu sjö mörk hvor fyrir Selfyssinga og Tinna Soffía Traustadóttir sex.

ÍBV hefur nú 20 stig í þriðja sæti deildarinnar. Selfoss er í 10. sæti með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×