Bíó og sjónvarp

Angelina Jolie rammgöldrótt

Leikkonan og Óskarsverðlaunahafinn  Angelina Jolie , 38 ára, leikur í nýjustu kvikmynd úr smiðju Disney, Maleficent. 

Í myndinni leikur hún illmenni sem herjar á prinsessuna Áróru, sem leikin er af Elle Fanning, en kvikmyndin segir sögu Öskubusku frá sjónarhorni illmennisins.

Í stiklunni, sem fylgir hér að neðan, sjáum við Maleficent nota töfra sína til þess að leggja álög á Áróru, dóttur konungsins sem reynir að hafa heimili nornarinnar af henni í byrjun myndarinnar.

Ásamt Jolie og Fanning leika í myndinni Juno Temple, Imelda Staunton og Brenton Thwaites.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.