Bíó og sjónvarp

Edda og Sverrir hrepptu Gullbjölluna

Jóhannes Stefánsson skrifar
Edda og Sverrir í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Monica Z.
Edda og Sverrir í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Monica Z.
Sænsk-íslenska leikkonan Edda Magnason hreppti í kvöld sænsku Gullbjölluna fyrir hlutverk sitt sem Monica Zetter­lund í kvikmyndinni Monica Z. Íslendingurinn Sverrir Guðnason leikur á móti Eddu í myndinni og hlaut verðlaun fyrir leik í aukahlutverki.

Gullbjallan er heitið á verðlaunum sænsku kvikmyndaakademíunnar og svipar þeim til íslensku Eddunnar. Myndin er í leikstjórn Pers Fly og segir frá tónlistarferli og ástum Monicu Zetterlund á dramatískan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.