Brennivín til Bandaríkjanna Andri Þór Sturluson skrifar 7. febrúar 2014 13:26 Íslenska Brennivínið.
Forn fjandi margra Íslendinga með áfengisvandamál var enn á ný að komast í erlendu fréttirnar. Íslenska Brennivínið er umfjöllunarefni í nýrri grein Vice sem hefst á þeirri skemmtilegu setningu: „My friend Einar...“ og fjallar um þennan ógeðisvökva sem við þykjumst vera svo stolt af. Samkvæmt greininni er verið að fara flytja Brennivínið út til Bandaríkjanna og við því er aðeins eitt að segja. Gott á þá. Þeir verðskulda þetta. Greinin er full af hinu týpíska bulli sem maður lýgur að útlendingum. Þar er talað eins og við séum öll í því að grilla lunda, böka brauð í hverum og trúa á álfa. Ef ég næði í skottið á þeim sem gaukaði þessu að greinarhöfundi þá myndi ég húðskamma hann fyrir að gleyma að minnast á sex hæða snjóhúsablokkirnar okkar með lyftu og bílastæðakjallara. En vei! Það eru útlendingar þarna úti að tala um okkur og það er það eina sem við höfum. Ég hætti að lesa greinina þegar hún fór að fjalla um kokteila úr Brennivíni með nöfn eins og Norðurljós og Katla. Þá fékk ég bara æluna upp í háls og stóð upp.
Harmageddon Mest lesið Fimm bestu lögin sem stappa í mann stálinu í skammdeginu Harmageddon Apple auðveldar viðskiptavinum að eyða U2 plötu úr tækjum sínum Harmageddon Siggi Hakkari sakar Wikileaks um hroka Harmageddon Keith Richards átrúnaðargoð Sveppa Harmageddon Fór inn í bílskúr til þess að kasta upp Harmageddon „Ef þú hefur ekki stjórn á sjálfum þér þá getur þú ekki stjórnað stórum vinnustað“ Harmageddon Nýtt myndband með Benny Crespos Gang frumflutt á Vísi Harmageddon Kate Moss glæsileg í Playboy Harmageddon Undirheimarnir of brútal fyrir skáldsögur Harmageddon Villi naglbítur var landsliðsmaður í handbolta Harmageddon