Harmageddon

„Endaþarmsmök stuðla að jafnrétti kynja“

Andri Þór Sturluson skrifar
Hljómsveitt.
Hljómsveitt.
Stjórnendur Harmageddon voru aldeilis minntir á það að þeir eru komnir til ára sinna og hugsanlega úr sér gengnir vegna aldurs og íhaldssemi þegar Anna Tara úr hljómsveitinni Hljómsveitt mætti í viðtal nú í morgun.

Rætt var um klofklippingar, tepruhátt og endaþarmsmök af meiri yfirvegun en maður er vanur í útvarpi.

Femínistarapp (tónlistarstefna, ekki símaforrit) er greinilega að koma sterkt inn en meðlimir Hljómsveittar eru einnig í bandinu Reykjavíkurdætur. Lög eins og Ég elska að fá það og Nice í rassinn gefa strax til kynna að Hljómsveitt er hugsanlega ekki allra en hægt er að hlusta viðtalið við Önnu Töru hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.