Tíska og hönnun

Stjörnufatahönnuður fannst látinn í Hudson-ánni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stjörnufatahönnuðurinn Michele Savoia fannst látinn í Hudson-ánni á sunnudag samkvæmt fréttasíðunni TMZ. Michele hefur klætt stjörnur á borð við Robert DeNiro og Ricky Martin.

Michele sást síðast í afmælisveislu Paris Hilton sem haldið var á Marquee-næturklúbbnum í New York á fimmtudag. 

Lík hans fannst fljótandi í ánni nálægt húsbáti hans. Hann var 55 ára að aldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×