Tíska og hönnun

Fjölskyldan styður við bakið á Victoríu Beckham

Marín Manda skrifar
Victoria mætti með sonum sínum en hér er hún með Romeo.
Victoria mætti með sonum sínum en hér er hún með Romeo.
Litla Harper Beckham var fullkomin klappstýra á fremsta bekk á sýningu móður sínnar, Victoríu Beckham á Mercedes Benz  tískuvikunni sem fram fór á Cafe Rouge á Manhattan í New York á sunnudag.



Sýningin þótti hin glæsilegasta og þangað mætti öll fjölskyldan til að styðja við bakið á Victoríu. Hin tveggja ára Harper sat á kjöltu föður síns, David Beckham og var hin prúðasta. Að sjálfsögðu var hún sjálf klædd í tískufatnað frá toppi til táar og hárið greitt aftur í háan snúð. 

Ofur pabbinn og fyrrverandi fótaboltamaðurinn, David Beckham var duglegur að sinna krökkunum fjórum sem að öll horfðu á sýninguna. Brooklyn, Romeo and Cruz stilltu sér reglulega upp þegar faðir þeirra tók sjálfsmyndir af fjölskyldunni.

Fyrir sýninguna deildi Victoría fallgum skilaboðum frá börnunum sínum á Instagram en þar stóð; „Gangi þér vel mamma, við elskum þig David, Brooklyn, Romeo, Cruz og Harper xxxxx."

David Beckham með Harper Beckham á sýningunni.
Fatalína Victoríu Beckham bauð upp á spennandi flíkur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×