Bílar

Upptökur á Fast and Furious 7 í gangi

Finnur Thorlacius skrifar
Svo virðist sem upptökur séu aftur hafnar á sjöundu myndinni af Fast and Furious en myndir náðust af upptökum í Abu Dhabi. Upptökum á myndinni frestuðust vegna sviplegs fráfalls eins helsta leikara myndanna, Paul Walker.

Í myndskeiðinu sem hér sést elta lögreglubílar Ferrari 458 bíl á götum Abu Dhabi og hefur götunum greinilega verið lokað vegna upptakanna. Fréttir herma að Paul Walker muni sjást í nýju myndinni þar sem nokkrar senur með honum voru þegar uppteknar er hann lét lífið á Porsche Carrera GT bíl sem í ógætilegum akstri vafðist utanum staur.

Breyta þurfti handriti myndarinnar eftir fráfall Paul Walker og einnig þurfti að breyta útgáfudegi nýju myndarinnar, sem nú er sett á 10. apríl á næsta ári. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×