Lífið

Mikil þátttaka í Instagram-leik Léttra spretta

Fjöldi fólks hefur nú þegar merkt myndirnar með #lettirsprettir.
Fjöldi fólks hefur nú þegar merkt myndirnar með #lettirsprettir.
Instagram leikurinn #lettirsprettir byrjaði í síðustu viku í tengslum við þáttinn Léttir sprettir á Stöð 2.

Dregið verður reglulega úr þeim Instagram-myndum sem merktar eru #lettirsprettir í hverri viku þar til þáttunum lýkur í byrjun apríl.

Í verðlaun eru tvö pör af nýjustu og bestu hlaupaskónum frá Nike, tveir grunnvítamínpakkar frá Now og Nike snjallarmband frá NOVA.

Fjölmargir hafa nú þegar tekið þátt í leiknum eins og sjá má af myndaúrvalinu hér fyrir neðan. Við hvetjum alla til að merkja myndir af sér, vinum eða fjölskyldumeðlimum við hvers kyns íþróttaiðkun með #lettirsprettir til að komast í pottinn.

Léttir sprettir eru á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum. Í þættinum er fjallað um almennar íþróttir sem fólk stundar. Farið verið yfir þann búnað sem mælt er með að fólk eigi til að stunda íþróttina, hvernig þjálfun er æskileg til að ná betri árangri og koma í veg fyrir meiðsli.

Einnig er lögð áhersla á næringu og í lok hvers þáttar er matreiddur hollur réttur sem er stútfullur af næringarefnum.


Tengdar fréttir

Léttir sprettir og réttir

Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, mætir með nýjan þátt á Stöð 2 í febrúar. Í þættinum verða almenningsíþróttir teknar fyrir ásamt næringu og hollri matreiðslu.

Asískt kjúklingasalat úr Léttum sprettum

Í hlaupaþætti Léttra spretta útbjó ég bráðhollt og brakandi stökkt kjúklingasalat sem einfalt er að leika eftir. Salatið er stútfullt af næringarefnum og einstaklega bragðgott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.