Lífið

Erfiðasta sem Angelina Jolie hefur gert

Angelina Jolie
Angelina Jolie Vísir/Getty
Angelina Jolie leikstýrir væntanlegri kvikmynd, Unbroken, um Louis Zamperini Ólympíufara og hetju úr síðari heimstyrjöldinni sem lifði af á hafi úti í 47 daga eftir flugslys. Hann var þaðan gripinn af japanska sjóhernum og sendur í herbúðir.

„Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert,“ segir Angelina í viðtali við Tom Brokaw hjá NBC-stöðinni. 

Myndin er önnur sem Jolie leikstýrir, en sú fyrsta var In the Land of Blood and Honey árið 2011. Unbroken er eftir Coen-bræður, Richard LaGracenese og William Nicholson, og byggð á metsölubók Lauru Hillenbrand, um ævi Zamperini.

Zamperini er 97 ára gamall.

Sýnishorn úr myndinni má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.