Tónlist

Ásgeir fetar í fótspor Beyoncé

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Ásgeir Trausti er kominn til Columbia Records
Ásgeir Trausti er kominn til Columbia Records visir/getty
„Þetta er mjög góður samningur fyrir okkur og er samvinnuverkefni fyrirtækjanna One Little Indian og Columbia," segir María Rut Reynisdóttir, umboðsmaður Ásgeirs, en Ásgeir hefur gert samning við bandaríska útgáfurisann Columbia Records.

Samningurinn við Columbia er líkt og samningurinn við One Little Indian, upp á þrjár plötur. „Samningurinn breytir umfanginu og dreifingu plötunnar til hins betra, við erum að fá það besta frá báðum fyrirtækjunum," segir María Rut.

Hún segir jafnframt að hlutirnir hafi verið fljótir að gerast. „Við vorum í viðræðum við fleiri bandarísk stórfyrirtæki," segir María Rut og bætir við að mikill skilningur hafi verið hjá Columbia fyrir því, að Ásgeir fengi að halda sinni sérstöðu, sem svokallaður Indie tónlistarmaður. Plata Ásgeirs, In The Silence kemur út í Bandaríkjunum 4. mars.

Hann er nú að koma heim eftir gæfuríkt tónleikaferðalag um Asíu. „Hann stoppar aðeins heima núna en fer svo til Bandaríkjanna 8. mars og verður þar í rúma viku," segir María Rut. Ásgeir kemur meðal annars fram á South By Southwest-tónlistarhátíðinni en eftir Bandaríkjareisuna fer hann í tónleikaferðalag um Evrópu fram til 14. apríl.

Beyoncé, Adele, John Mayer, Daft Punk og Depeche Mode eru meðal þeirra tónlistarmanna sem eru með samning við Columbia Records.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.