Lífið

Bréf til borgarstjórans sló í gegn

Helga Haraldsdóttir úr Dölunum er ein þátttakenda í þættinum Ísland got Talent á Stöð 2. Það má með sanni segja að hún hafi heillað dómara og áhorfendur upp úr skónum í þætti kvöldsins með frumsömdu lagi sem hún kallar Bréf til borgarstjórans.

Texti lagsins er einstaklega skemmtilegur og hlógu viðstaddir sig máttlausa. Hér að neðan má sjá brot úr textanum.

Af hverju flokkum við ei fegurð í fellingum

Af hverju flokkum við ei fegurð í fellingum

Þá væri Ásgeir Kolbeins tíður gestur á Bæjarsins bestu

Unnur Birna myndi alveg ljóma, meðan hún hellti í sig rjóma

Gaui litli fengi allar stelpur, niður á fjóra til að spangóla

Af hverju, flokkum við, ei fegurð í fellingum

Hægt er að horfa á myndskeiðið hér að ofan.

Þá sló Ásta B.O. Björnsdóttir í gegn með söng sínum. Eftir nokkuð langan aðdraganda þar sem stressið gerði vart við sig hóf Ásta upp raust sína. Þá var ekki aftur snúið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.