Lífið

Reyndi að stela Óskarsstyttunni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Jennifer Lawrence laut í lægra haldið fyrir 12 Years a Slave-stjörnunni Lupitu Nyong'o á Óskarsverðlaununum í gær. Lupita fékk verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki en margir héldu að Jennifer myndi hreppa hnossið.

Jennifer er þekkt fyrir að slá á létta strengi og brá á leik baksviðs eftir verðlaunahátíðina. Mynd náðist af Jennifer reyna að stela Óskarsstyttunni af Lupitu en það var auðvitað allt gert í góðu gamni.

Jennifer hlaut styttu í fyrra fyrir frammistöðu sína í Silver Linings Playbook þar sem hún hrasaði á leið uppá sviðið. Heppnin var ekki heldur með henni í gær en hún hrasaði á rauða dreglinum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.