Lífið

Svona opnaði Ellen Óskarinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres var kynnirinn á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fór fram vestan hafs í gær.

Ellen vægast sagt reitti af sér brandarana og byrjaði hátíðina með trompi.

Gerði hún meðal annars grín að Lizu Minnelli og sagði þetta vera besta eftirherma söngkonunnar sem hún hefði séð.

Það sem vakti mesta lukku var þó þegar hún gerði stólpagrín að Jennifer Lawrence og þegar hún datt á Óskarnum í fyrra þegar hún tók við verðlaunum fyrir leik sinn í Silver Linings Playbook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.