Lífið

Kærasta Mick Jagger fyrirfór sér

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Mick Jagger ásamt kærustu sinni heitinni.
Mick Jagger ásamt kærustu sinni heitinni. Vísir/Getty
Kærasta Mick Jagger, hin 49 ára L'Wren Scott, fannst látin í íbúð sinni á Manhattan í New York fyrr í dag.

Þetta staðfestir lögreglan í New York í samtali við fréttamiðla vestanhafs.

Aðstoðarmaður hennar kom að henni. 

Samband hennar og Mick Jagger hófst árið 2001. 

Scott var þekkt í tískuheiminum. Hún var alin upp í Utah í Bandaríkjunum, af fósturforeldrum sínum sem voru mormónar. Hún útskrifaðist úr framhaldsskóla árið 1985.

Scott vakti mikla athygli fyrir að vera einstaklega hávaxin, en hún var 194 sentímetrar á hæð. Hún naut mikillar velgengni snemma á ferli sínum og sat ung fyrir hjá fyrirtækjum á borð við Calvin Klein og Chanel.

Á tíunda áratug síðustu aldar sneri Scott sér að hlutverki stílista. Hún vann með stjörnum á borð við Madonnu, Juliu Roberts og Tom Hanks.

Hún lét einnig til sín taka sem hönnuður. Hún hannaði kjóla á Madonnu, Sarah Jessica Parker, Angelinu Jolie, Penelope Cruz og Nicole Kidman.

Hún vann með fyrirtækjum á borð við Lancome og Banana Republic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.