Sport

Wawrinka tapaði í fyrsta skipti á árinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Það verður ekkert úr því að Svisslendingarnir Roger Federer og StanislasWawrinka mætist í átta manna úrslitum Indian Wells-mótsins.

Roger Federer komst í átta manna úrslitin með því að leggja Þjóðverjann TommyHaas að velli í tveimur settum, 6-4 og 6-4.

Wawrinka, sem vann opna ástralska mótið og var taplaus á árinu, tapaði fyrir KevinAnderson frá Suður-Afríku í þremur settum, 7-6, 4-6 og 6-1.  Anderson mætir því Federer.

Novak Djokovic vann Króatann MarinCilic, 1-6, 6-2 og 6-3 og mætir Frakkanum JulienBenneteau í átta manna úrslitum. Frakkinn vann FelicianoLopez frá Spáni í þremur settum í fjórðu umferðinni.

Skotinn Andy Murray er úr leik en hann tapaði fyrir MilosRaonic. Hann mætir AlexandrDolgopolov í átta manna úrslitin en Úkraínumaðurinn gerði sér lítið fyrir og vann Rafael Nadal í þriðju umferð mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×