Lífið

Þorsteinn nýtur aðstoðar Messi, Van Persie og Agüero

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorsteinn fer með aðalhlutverkið í auglýsingunni.
Þorsteinn fer með aðalhlutverkið í auglýsingunni. mynd/samsett
Akureyringurinn Þorsteinn Sindri Baldvinsson fer með aðalhlutverkið í glænýrri auglýsingu frá Pepsi ásamt skærustu fótboltastjörnum heims.

Robin van Persie, David Luiz, Sergio Ramos, Sergio Agüero, Jack Wilshere og Lionel Messi fara einnig með hlutverk í auglýsingunni.

Þorsteinn, sem er trommari og gengur oftast undir nafninu Stony, gengur um götur Rio í auglýsingunni og framkallar hljóð með ýmsum hætti undir lagi David Bowie, Heroes.

Þorsteinn komst fyrst á sjónvarsviðið þegar hann gerði ábreiðu af lagi Macklemore og Ryan Lewis, Can't Hold Us sem tæplega milljón manns hafa séð á myndbandsvefnum YouTube.

Fyrir tveimur árum fékk Þorsteinn vinnu hjá YouTube og fær hann í raun greitt fyrir að setja inn myndbönd á síðuna.

Þorsteinn bjó þá sér til síðu á Youtube, StonysWorld, og fékk strax fjölda áskrifenda. Nú horfa hundruð þúsunda manna á myndböndin sem hann setur á netið.

Auglýsinguna má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.