Tónlist

Tekur Drunk in Love með Beyoncé

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran var gestur í útvarpsþætti Elvis Duran á útvarpsstöðinni Z100 og flutti sína útgáfu af Beyoncé-smellinum Drunk in Love.

Flutningur Eds vakti mikla athygli en hann var í útvarpsþættinum til að kynna nýju plötuna sína X, sem kemur út þann 23. júní.

Ed er þekktur fyrir að setja lög annarra í nýjan búning og hefur til dæmis gert þetta með lög Blackstreet og Rihönnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.